Jæja stúlkur, ætlar engin önnur að fara blogga á þetta vesæla
vefsvæði okkar!
Sko, þegar Þórdís er komin heim frá Skotaveldi þá segi ég
að við höfum einn dag útaf fyrir okkur, borðum saman, horfum á
vídjó og svona, kannski djamm um kveldið, ég meina hey, er ekki
páskafrí!?
Og það er eitt sem verður með í för! Myndavél. Síðan
setjum við myndirnar hérna inná vefinn og gerum þetta svolítið
lekkert. Breytum til hérna, heck I'll do it sko.
Hvað segiði, kannski smá stelpubústaður eða eitthvað í
sumarfríinu... æi bara eitthvað, því við gerum aldrei neitt.
ja jú Melkorka og ég kíktum nú saman í lagersölu á föstudaginn og
gerðum þvilík kjarakaup. Svo fórum við í Smáralind og gerðum
enn á ný gríðarlega góð kaup. Kallarnir okkar voru með og
minn bara nýkominn með bílpróf hahahaha jey! Svo skelltum við
okkur á Stælinn Kópavogi og fengum okkur dýrindis máltíð hahahah,
skemmtilegur dagur.
Jæja, annars er ég innilega farin að hlakka til páskanna,
súkkulaði, sætindi, og frí hahahah hið ljúfa líf!
En Þórdís, farðu að drulla þér heim, því ég sakna
þín! ROSA MIKIÐ ástarpungurinn minn!
Stellingur hefur talað.... enn á ný!